Starfsfólk Touch hárstofu eru allt lærðir hársnyrtar og hafa verið í faginu í yfir 10 ár.

Svava Björg Harðardóttir útskrifaðist úr Iðsnskólanum sem hársnyrtir 1995. Hún hóf störf sem nemi hjá Kompaníinu sem var þá í Ármúla 15. Eftir að hafa klárað skólann varð hún meðeigandi í Kompaníinu í 5 ár. Hætti hún þar 2002 í kjölfar barneigna. Árið 2007 stofnaði hún ásamt vinkonum sínum Touch hárstofu.

Þórdís útskrifaðist úr Iðnskólanum árið 1990. Hún hóf störf á Hárgreiðslustofunni Papillu og fór þaðan á Hárgreiðslustofu Dóra 1994 til 2007. Árið 2007 stofnaði hún ásamt vinkonum sínum Touch hárstofu.

Guðný Björk Sveinlaugsdóttir, útskrifaðist úr Iðnskólanum 1996. Hún hóf störf sem nemi á Hárgreiðslustofunni Primadonnu. Eftir útskrift færði hún sig yfir á Hárgreiðslustofuna Onix og var þar í 4 ár, þar til hún hóf störf hjá Kompaníinu, þar starfaði hún í 8 ár. Árið 2007 stofnaði hún ásamt vinkonum sínum Touch hárstofu.

Halla Kristín Árnadóttir, útskrifaðist árið 2000. Starfaði hún á Hárgreiðslustofunni Möggunum í 10 ár. Árið 2007 færði hún sig til okkar hjá Touch.

Harpa Birgisdóttir, útskrifaðist árið 1998. Var hún nemi á Hárgreiðslustofunni Hárinu. Þar á eftir fór hún á Hárgreiðslustofuna Möggurnar og var þar í 9 ár. Þaðan kom hún til okkar á Touch árið 2007.


